;*
Elma 16 :D
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1713 dögum
HLAKKA TIL!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1675 dögum
11.10.2007 09:50:27 / andrea

Heimaslóðir!

Vá ég hlakka svo tiiil, er búin í skólanum í dag, hefði ekki þurft að mæta :whut: fór samt í strætó hálf átta í skólann og svo þegar þangað var komið var kennarinn veikur. Er svo í eyðu eftir þann tíma og svona, og ég er að fara SUÐUR örugglega um hádegisbilið svo ég hefði getað sofið út í morgun :frown: En það er allt í lagi. Ég er góð, voða kósý að vera bara kominn undir sæng aftur og ætla að horfa á friends :) Fer svo VESTUR á morgun, vá ég get einfaldlega ekki beðið. Hlakka svo til að geta rúntað með stelpunum og bara að vera á ÍSAFIRÐI!!!!! Ég hefði aldrei trúað að ég ætti eftir að sakna þess svona mikið að vera þarna. Ætla að setja nokkrar gamlar myndir :) ;*

 IMG_2803.jpg picture by sitronubakaegsjalf.jpg picture by sitronubaka
Ég og elma á litlu jólunum í fyrra :)

myndir1003.jpg picture by sitronubakaafmliandrea002.jpg picture by sitronubaka

Rósaballið og afmælið mitt :)

 97721.jpg picture by sitronubakams.jpg picture by sitronubaka

fdghjjjk.jpg picture by sitronubaka
Strawberry.jpg picture by sitronubaka

72CATXMYYRCAV1AB6DCAYJBPURCAEUC6YKC.jpg picture by sitronubaka

beataogmonika.jpg picture by sitronubaka 

HAHAHA þessi mynd er snilld, alveg eins og Monica sé að kyssa Beötu :)

AndreaGylfadóttir
 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 17:53:01 / Agla

böbb... eða nei bara böb:)

Já hæææ  ! :)  

  • Bára kom um helgina , gaman að hitta hana , svo var helgin líka alveg klassi ! held ég hafi ekki skemmt mér svona vel í langann tíma.. :D:D
  • Og Vá ég get ekki beðið eftir fimmtudeginum 18. okt þegar við elma og elín stígum uppí vél á leið NORTH :D tilhlökkunin er alveg að fara með mig ! Tíminn er líka svo fljótur að líða að það er bara geggjað :D:D ...og
  •  ég er líka bara geðveikt ánægð með þennan mánuð (helgarnar), auðvitað því ég á bráðum afmæli:D:D því næstu helgi þá fer ég að hitta viktoriu beibílov sem ég hef ekki hitt í laaangann tima og svo er e-h svakalegt planað á laugardaginn .. kannski miðvikudaginn og fimmtudaaginn líka ? HEE eða bara mið til sunn hvað segiði um það stelpur minar:D? Nei djók
  • Svo þarnæstu kemur kannski andrea eða réttarasagt á fimmtudeginum og til mánudags- og svo fimmtudeginum í sömu viku þá förum við einmitt til hennar :D gerist það betra ?:D Svo náttúrulega á mánudeginum eftir það þá verð litla ég 16 :):D
  • Annars þá er skólinn að fara með mig í gönur ?  nei okey ég er hætt í bili ! Ps. Það kemur bráðlega inn “Viðtalið” bíðið spennt auðvitað;D Ps2. Mæli eindregið með nýja disknum hans 50 cent , nokkur góð lög þar á ferð :) ekki kaupa kanye west diskinn!!! (eða jú kannski)Ps3. Síja beibíkeiks!!!Ps4. Gimme með Britney er MEGA gott lag ! ps5. þema bloggsins eru ávextir


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 10:41:20 / andrea

Back in the old day's!

Hellú

það er ekki gaman að vera lasin, það er ekkert að gera og manni líður bara illa. Ákvað að vera heima í dag til að ná þessu almennilega úr mér, nenni ekki að vera hálfveik í vinnunni á morgun og eitthvað bull. Er öll að hressast held ég, kannski maður fari bara að taka til á heimilinu í dag :) Veitir ekki af, allavga ekki hérna inni í svefnherberginu, úff. En ég er búin að horfa svo mikið á friends síðustu 3 dagana, það er svo kósý að horfa á þau, manni finnst þau bara vera vinir manns haha. Ætla að setja hérna smá komment á vinina, sem mér finnst.

 Monica Geller. Mér finnst Monica ógsðegla fyndin caracter, kemur mér alltaf ti að hlægja. Það er svo ógeðslega fyndið hvernig hún segir "I know!!" Kemur mjög oft fyrir haha. Hún hefur líka gígatíska skipulagshæfileika, kannski aðeins út í öfgar.

 Ross Geller. Mér finnst Ross leiðinlegasti vinurinn, ófyndnastur af öllum finnst mér. Samt er hann alveg fyndin, það er ekki hægt að hlægja ekki a ð manni sem giftist lesbíu. Og fyndnasta atriðið með honum sem ég man eftir er þegar hann var á Date-i í leðurbuxunum sínum og fór úr þeim inni á klósetti og komst ekki aftur í þær haha. Kom svo heim allir í búðri og kremi i engum buxum!

Phoebe Buffey. Phoebe... Vá hún er uppáhalds stelpu caracterinn minn! Haha hún er svo rugluð, mætti halda a hún væri á hassi alltaf. Segir svo ógeðslega fyndna hluti sem engin skilur. Svo eru lögin sem hún semur snilld. Mér finnst geðveikt fyndið þegar hún segir við Monicu "aww Pheebs" og Monica segir "Pheobe, thats your name". "Oo, that's short for Pheobe? I thought that was just what we called eachother".

 

 Joey Tribiani. Mjög fyndin og skemmtilegur, það skemmtilegasta við hann er eiginlega hvað hann er heimskur, hann veit ekki neitt. Geðveikt lengi að fatta allt og misskilur flest :haha:. Graandmas chicken salad.

 Rachel Karen Green. Ég er ekki hrifin af henni. Hún er fyndin og allt það. En hún er alltaf eitthvað vælandi út af engu, mér finnst vandamálin hennar alltaf leiðinlegust. Og mér finnst þarna "we were on a break" mál mér finnst það leiðinlegt!

 Chandler Bing. Kónungurinn! Ég elska hann. Hann er mitt uppáhald! Guð hann er fyndnasta sjónvarpspersóna sem ég hef séð. Ótrúlega kaldhæðinn og bara bestur!!! Mér finnst hann lika svo sætur, ekkert smá sætur maður. Hann er líka æði þegar hann er alvarlegur, eins og þegar hann og monica gifta sig og svona. Æði!

Hver er þinn uppáhalds vinur?

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 17:35:59 / andrea

ComeBack?!

Halló!

Við ákvöðum í gær að gefa þessari síðu annan séns eða svoleiðis, bara byrja með hana aftur :) Annars er allt gott að frétta af mér! Sakna Ísafjarðar ógeeeðslega mikið. Og Elmu og Borghild ennþá meira, en þær eru báðar búnar að panta sér flug norður á löngu helginni í MÍ! Það eru bara 24 dagar í það!!! Styttist alltaf. Langa helgin í VMA er... helgina á undan henni. Okkur Kára langar geðveitk vestur þá, en maður sér til hvort maður nennir. Annars var ég bara að koma úr ræktinni, alveg búin á því. Líka skítkallt úti að labba þangað og heim. Og hvað gerist þegar ég labbaði heim ? Það kemur haglél! Og ekkert lítið bara hart og kallt vetrar él, í september. Ég er ekki sátt við þetta veðurfar á þessu landi (eða kannski bara á þessum landshluta ?) Stelpur! Þið verðir að vera duglegar að taka myndir og setja inn, því að ég hérna fyrir norðan hef ekkert merkilegt að taka myndir af og svo eigum við ekki myndavél haha! Svo það fellur í ykkar hendur :) Og örugglega slúðrið líka, ekki nema þið viljið heyra slúður um fólk sem þið þekkið ekki og það vill enginn haha! Nei segi svona, ég geri mitt besta :) Svo er frábært að hafa Sólveigu hérna líka með mér, ætla að kíkja til hennar í kvöld og heilsa upp á hana og sjá nýja húsið ;) En ég ætla að setja nýjar myndir af litla heimilinu mínu einhverntíman á næstunni, ef einhver er fotvitin um það hehe :) En ætlaði bara að láta vita að við erum mættar aftur, ferskar eftir langt frí!

Andrea Gylfadóttir

Picture0157.jpg picture by sitronubaka


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 20:18:12 / andrea

Djííiískræst

Við erum mega latar, en ekki almennt, bara í að blogga. Erum nefnilega allar búnar að vera ógeðslega duglegar að vinna og svona í sumar. Ég og Borghild í fiskinum og elma í hamraborg. En vaaaaá hvað ég er glöð að það sé föstudagur, búin að þrá þetta helgarfrí síðan ég koma heim, búið að vera erfið vika afþví að ég var að koma úr fríi. Dagurinn í dag var skítlangur og leiðinlegur. Þurfti að mæta klukkan 7, og var að vinna til 6. Ekkert nema harka! Svo er bara vika eftir af fiskivinnunni þá fer frystihúsið í frí og ég ætla ekki að vinna þar þegar það kemur aftur. Ég verð líklega fyrir sunnan eða norðan og líklega ekki fyrir vestan :) En þannig er það að við erum komin með íbúð, Kári keypti sér. Og það er bara frábært að vera búin að leysa það.

 

Allavega, til að gera þetta blogg lengra... Ég koma frá Noregi á mánudaginn. Það var ógeðslega gaman úti og ég verslaði fyrir milljón dali. Ógeðslega gaman að versla í Norge, geðveikar Vero Moda búðir þarna, miklu flottari en hérna á klakanum, og náttlega HM, ég gæti verið inni í svona búð í 4 tíma straight...gggrrrrrrr.

En eitt sem mig langar að ræða. Fm957, okei... Zúúber (haha) eru í fríi og Heiðar Austmann og Magga Meikup eru í staðin. Er þetta bara ég eða eru þau leiðinlegri en aaaalllt? Vá þetta er svo misheppnað hjá þeim, greyunum. Reyna allltaf að vera geðveikt fyndin og svona en það virkar aldrei. Blaaaah, hvað finnst þér?

Andrea 80's blogger out (finnst þetta blogg eitthvað svo 80's)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 12:11:18 / andrea

Stelpur ! :)

Kem heim á morgun ;) Hlakka til að hitta ykkur sætu ;**

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 16:10:50 / andrea

Steikjandi sól og sumar

Veðrið leikur við okkur Ísfirðinga þessa dagana og sólin skín og ekki eitt einasta ský að sjá. Þetta sumar er að líða of hratt fyrir minn smekk, júní er að verða búin og ég er ekki sátt. Maður er bara að vinna á hverjum degi frá átta til fjögur og eiginlega alltaf lengur en það og þá er maður svo uppgefin að maður nennir engu og fer bara að sofa snemma. Annars er bara geðveikt fínt í vinnunni, góður félagsskapur þarna. Og bara fínn peningur...

Ég fékk yndislega óvænta ánægju í morgun, fór heim til min til að hitta Dísu frænks sem kom með flugi við fyrsta hanagal til að vera í brúðkaupi vinkonu hennar og mömmu. Og þegar ég var að flatmaga með þeim úti á svölum í blíðunni kom pabbi með óvæntan glaðining til mín og það var svört taska og í henni var glæný fartölva!! Dekur hvað :$ hehh, ég er í skýjunum, geðveikt flott tölva. Acer eitthvað... Með innbyggðri webcam sem er örugglega betri en digital myndavélin mín :haha: I'm sooo happy. Hef aldrei áður séð windows vista og það er í þessari og vá hvað það er ógeðslega töff, allt öðruvísi.Ég er komin inn í vma og fer þá norður á Akureyri í haust sem er bara spennó.

Ætlaði bara að lífga þessa síðu við, hata að sjá þetta gamla blogg fyrir neðan, en samt fara svona margir inn á hana, svo ég varð að blogga smá :)

 Enjoy the summer  

Song Lyrics


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 16:31:20 / Elma

Samræmd?

Hey, þið sem eruð að klára 10unda bekk og eruð búinn að fá samræmduprófs einkunnirnar ykkar, hvernig gekk ykkur ?

btw. þið getið farið útí skóla og fengið þær núna ;)

Photobucket - Video and Image Hosting

Jájá, í dag á Hjörtur nokkur afmæli, Hann verður 16 ára í dag, til hamingju, til hamingju beib ;*

Hjörtur og Horsí

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 16:24:52 / andrea

Skólaferðalag 10.Bekkjar

Ætla að byrja að segja VÁ! Það var svo gaman að ég kemst ekki yfir það en ég nenni samt ekki að einhver sem fór í fyrra segi "Sagði að það yrði gaman!" Og fari að bera ferðalagið í fyrra og okkar ferðalag saman, ég nenni ekki að hlusta á það, sorry ;)

Við lögðum af stað á síðasta mánudag um níu leytið og það var bara geðveikt gaman að keyra eiginlega. Við skemmtum okkur konunglega við stelpurnar =) Man ekki alveg hversu lengi við vorum á leiðinni en vorum komin á Bakkaflöt seinnipartinn. Við urðum sko alls ekki fyrir vonbrigðum með þetta hótel. Við vorum fjórar saman í herbergi Ég, Bára, Elma og Borghild. Og herbergin voru bara alveg geðveikt flott og snyrtileg. Stór og góð rúm, vaskur, borð og spegill og nóóóg pláss fyrir okkur allar og draslið sem okkur fylgir :P Við komum okkur bara fyrir í rólegheitinum og gerðum herbergið geðveikt kósý og stelpulegt. Ógeðlsega flott, tjilluðum fram að kvöldmat sem var seinna um kvöldið. Svo er sundlaug á hótelinu og tveir heitir pottar. Lítil sundlaug og grunn en samt geðveikt þægileg. Minnir að við höfum farið í sund fyrir kvöldmatin við nokkrar stelpur og strákar. Og pælið í því... Ég fór í sund! Júhú! Og það var mega gaman. Og maturinn þarna var geðveikt góður, fengum pitsu fyrsta kvöldið. Þriðjudagurinn var magnaður, borðaður var morgunmatur og smurt var nesti  og svo fóru bekkirnir í sitthvoru lagi í river rafting. Okkar bekkur fór á eftir hinum kl. hálf ellefu eða eitthvað og þegar við vorum á leiðinni að ánni var komin snjókoma en svo þegar í ánna var komið kom bara sól og fínasta veður. Áinn var ekki jafn hræðileg og ég var búin að ímynda mér. Ég var sko búin að sjá fyrir mér að hún væri straumharðari en andskotinn og að ég myndi detta út úr og berast til Ástralíu með straumnum! En svo var bara alls ekki, þetta var alveg geeeðveikislega gaman. Og ég hef örugglega aldrei séð svona fallega staði eins og þegar við vorum í ánni, bara geðveikir klettar allstaðar. Og auðvitað Árvegur 6, stelpur ;). Svo var ekki verra að það var freakin goood looking guy með okkur í bát. Mér, Elmu, Báru, Katrínu Maríu, Júlíönu og Sunnevu. Hann var meega sætur. SS. Og við komumst í lang heilu og höldnum og meira að segja á undan strákunum! Sem við vorum að keppa við alla ánna. Lúsers :P Og eftir þetta klikkaða rafting fórum við heim og úr búningunum og beeeint í pottinn mmm hvað það var geðveikt gott. Og svo gátum við ekki verið þar nema í svona nokkrar mínútur því við áttum að mæta á hestbak strax. Leiðin lá þangað og þegar þangað var komið var öllum afhentur hestur og ég var sett á bak og þar sem ég hef aldrei á ævinni snert hest eða neitt þá varð ég ógeðslega hrædd og leið illa heeehh :D Var ekki tilbúin að fara í klukkutíma útreiðartúr svona í fyrsta skiptið. Svo ég gafst upp. Og eftir þessa hestaferð var okkur troðið enn einu sinni inn í  rútu og keyrðum þá á staðin þar sem klifrið átti sér stað sem var rétt hjá Varmahlíð. Og þar voru björgunarsveitargæjar að bíða eftir okkur með reipi og tilheirandi. Þessi klettur var mér mjög að skapi, var geðveikt fegin að þetta var ekki fjall og 100.000.000 metrar niður. Þetta var engin aumingjaklettur bara svona fínn. Og auðvitað prófaði ég að klifra, fór í svona klifurbelti og setti á mig hjálm :P Og það var geðveikt gaman og ekkert smá gaman að síga niður og spranga smá hehe.. Á þessum tímapunkti, eftir klifrið var maður alveg búúin eftir daginn og að sofna í rútinni á leiðinni heim. Það var matur og við fengum geðveikt góðan kjúkling og franskar og svo var víst ratleikur eftir kvöldmat 8| sem var frekar misheppnaður en allt í lagi samt. Svo var líka reipitog og stelpurnar unnu strákana líka í því heh.. Við erum 700 og þeir 2  eða eitthvað svo það er skiljanlegt:P Svo fórum við aftur í pottinn þegar við komum heim úr því sem var auðvitað mjög notalegt. Miðvikudagurinn var í tjillaðri kanntinum miðað við hinn. Við vöknuðum ekki fyrr en tíu held ég og fórum af stað á Hofsós um ellefu og fórum á safn þar sem heitir vesturfarasetrið og það var bara mjög flott safn, mér fannst allavega mjög gaman að sjá allt þetta dót og myndirnar og blabla. Svo fórum við á Hóla í Hjaltadal og fengum svaka tour frá gáfuðustu onu sem ég hef hitt, hún vissi svaðalega mikið :O Það var líka fínt að sjá það allt, flott kirkja og svona. Svo var farið heim og við rétt náðum í kvöldmat. Og í kvöldmatin var roosalega gott læri og syrkraðar kartöflur mm þetta var eins og að vera heima hjá sér algert æði :) Og eftir kvöldmatinn var ætluninn að fara á Sauðarkrók og þeir sem ætluðu að horfa á liverpool- ACmilan ætluðu að gera það, aðrir ætluðu í sund og sumir að heimsækja ættingja :) Og við og fleiri stelpur höfðum ekkert að gera þangað svo við fengum að vera bara á Bakkaflöt eftir, vorum níu stelpur. Fórum í sund og vorum þar heeil lengi og það var skoooo gaman stelpur :P heehheh. Svo kom skölli og vinkonan og eyðilöggðu allt HAHA! Svo við fórum bara uppúr og fórum á trúnó og eitthvað. Öll kvöldin voru flestar stelpurnar saman einhvernstaðar að spjalla og hafa það kósý í einhverju herbergi.Og oftar en ekki okkar herbergi því þar var ávalt verið að blasta bestu tónlistinni og klikkaður dans í gangi haha. En síðasta kvöldið var boðið upp á skúffuköku í tilefni af því að Freyja, Fannar og Gunnar áttu afmæli og strákarnir æfðu og sungu lag sem var alveg geðveikt flott hjá þeim. Svo daginn eftir keyrðum við heim og það var geðveikt gott að koma heim eins og alltaf :)

Nokkrir athyglisverðir hlutir sem gerðust í ferðinni;:
-Skaphárum af nokkrum strákum var komið fyrir í samloku sem var í eign Sigurðar en sem betur fer komust engin hár upp í hann
- Marthen var rakaður sköllóttur með bic rakvél, svona sköfu. Og það gekk illa hjá þeim
- Sérstök sundferð hjá stelpunum og borghild var algerlega á heimavelli þar haha
- Sunneva datt af hestbaki en sem betur fer meiddi hún sig ekkert
- Ég hoppaði ofan á Gunnar þar sem hann lá steinsofandi undir sæng í herberginu okkar og ég sá hann ekki haha
- Liverpool tapaði
- Ákveðin stelpa sá upp í rassinn á ákveðnum strák XD
- Teknar voru myndir af Aroni að skíta heehh
- Lag ferðarinnar var klárlega yeah yeah og vaáá hvað var gaman að dansa

nenni ekki meira. Takk fyrir ferðina 10.Bekkur þetta var geðveikt! Þykir vænt um ykkur öll :* Það koma fuullt af myndum hingað inn næstu daga :)

Andrea Gylfadóttir;**


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 16:59:59 / Elma

Yeah!

Ítarleg færsla um Föstudaginn 

Hæ, vá hvað þessi dagur er magnaður hann byrjaði reyndar ekki sem best, ég fór í skólann voðalega morgunsæt.. like always fyrir utan það að ég var extra ''sæt'´í dag svona til að bæta enn meiri gleði við það að ég vaknaði alltof seint og átti eftir að læra.. aldrei ákveða að læra fyrir próf sama morgun! en já, fórum í Íslenskupróf... já ópersunlegar sagnir og allt þetta dæmi, það gekk nú alveg ágætlega ekkert til að hrópa húrra fyrir en okay, svo fórum við Borghild að leita að bol fyrir mig en ég fann engann og hittum eitthverjar mega gelgjur á fertugsaldri. Svo, keyptum við franskar á meðan að eitthver ógeðslegur perrakall reið Báru með augunum. Svo kiktum við aðeins i kaggann hennar Esterar og hún fór með okkur að sækja bol sem Borghild sæta lánaði mér. Nú jæja, svo fór ég heim í sturtu og svona, já! svo kom að því að fara að læra heilt Þýskt lag á mettíma fyrir próf, það var voðalega skemmtilegt, hefðuð eflaust ekki viljað missa af þessu, eins og ég get nú verið þolinmóð 8) Svo fór ég í söngprófið og það gekk bara vel sem betur fer OG ég ruglaðist bara einu sinni í textanum eitthvað af ráði, en það var bara svona pylsa pulsa dæmi... svo ég var glöð. En já nú er ég kominn heim og vá hvað ég er feginn.. búinn með öll prófin, tónlistarprófin, og ég fæ að vinna í kvöld og á morgun! bara sææææt helgi og svo ferðin á mánudaginn!

jájájájá 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 17:22:49 / andrea

You can stay under my umbrella

hææ;*

Helgin var bara tremma góð hjá mér, mikil leti samt en það er svoo gott að slappa bara af =) Á föstudagskvöldið gerði ég bara virkilega lítið, var bara heima í tölvunni að lúðast og taka því rólega. Á laugardeginum komu gestir til okkar og það var eldaður góður matur og svona. Var að horfa á Eurovision draslið með öðru auganu, ekkert varið í þetta dæmi maður. Horfum svo auðvitað á stigagjöfina og það, djös samsæri eru þessi austurevrópulönd:O shiiit. En við komumst að einu, að keppnin á næsta ári verður mikið hagstæðari fyrir okkur líklega því að öll Austurevrópulöndin kusu bara svoleiðis lönd sem gerði það að verkum að þau eru í öllum efstu sætunum og þurfa þar af leiðandi ekki að taka þátt í forkeppninni á næsta ári og það verður kannski minna samsæri í henni þá. Við Íslendingar þurfum þá bara að koma með killer lag næst og láta öll Norðurlöndin kjósa okkur og kick ass-a alla þarna wúhú :P. Þetta er mín áætlun, sammála;)?  En seinna um kvöldið á laugardeginum horfði ég á kosningasjónvarpið, sem ég hafði undarlega gaman að og skemmtilegt að fylgjast með *geek* :D En svo fór ég út um.... ellefu leitið að hitta stelpurnar Elmu og Elínu og við tjilluðum smá heima hjá Elínu eða ekki smá.. í alveg tvo tíma eða meira heh, og fórum svo út í bæ að rölta að spjalla við fólk í bænum. Fórum svo í krílið og hittur þar Arnar Þór einan á rúntinum og fengum að fljóta með honum og vorum heillengi að rúnta með honum sem var bara fínt. Svo þegar krúsin lokaði fylltist planið þar fyrir utan af allskonar fólki og við hoppuðum þangað og hittum fullt af fólki og vorum þar í smá tíma. Sooo skutlaði Arnar mér heim man ekki hvað klukkan var... En fór bara að horfa á kosningasjónvarpið sem var enn í gangi. En gafst svo upp á því og sofnaði, þetta blessaða kosningarsjónvarp var frá kl.10 í gær til kl. 9 í morgun, fokk hvað tekur langan tíma að telja þessi atkvæði. En vá þetta er orðið óþarflega langt og mikið af bulli. Ætla að fara að læra fyrir próf. c ykkur haha :$

Þ ó r g u n n u r    S k o r d a l

TinyPic image


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 14:27:13 / andrea

28.Spurningar fyrir þig að svara

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Stal þessu af sólveigar síður :haha: Gerið þetta elskurnar ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 20:17:34 / andrea

Eurovision

zvrm9g

Þegar þessi orð eru skrifuð er forkeppni Eurovision í fullum gangi. Mér finnst skuggalega mikið af lélegum lögum og slatti þar sem konurnar sem syngja eru gjörsamlega ekki að ná tónunum. Og mér fannst Eiríkur bara helvíti flottur, söng geðveikt vel. Ánægð með hann. En vá, skólinn þessa dagana er svo tilgangslaus eitthvað. Mættum kl. 9 í morgun og gerðum ekkert og fórum heim kl. hálf 12 og það er svoleiðis aftur á morgun skillst mér. Ætla svosem ekkert að vera að kvarta undan þessu, gott að geta farið aftur hem og lagt sig fyrir hádegi. Skólaprófin eru svo í næstu viku, þessar elskur! Hef voða litlar áhyggjur af þeim, eftir að vera búin með samræmdu eru þau svo aumingjaleg greyin að þetta verður ekkert mál :) Svo þegar vikan er liðin og helgin komin þá looooooksins kemur Kári heim, búin að bíða alltof lengi. Og sem betur fer er komið sumar svo hann er ekkert að fara neitt í bráð aftur. Get varla beðið. Er farin að horfa á restina af Eurovision, vona að Eiríkur komist áfram, það hlýtur að vera hann er heimsfrægur á Norðurlöndunum er það ekki 8-).

dreaAnd dóttirGylfa 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 19:25:24 / andrea

Góðir tímar framundan

In my life - The Beatles 

Vei! Held að allir þeir sem fæddir eru árið 1991 séu sammála mér um að það sé mikill léttir að vera búin með samræmduprófin. Stærðfræðinn kom mér skemmtilega á óvart hvað hún var undarlega ekki eins erfið og ég gerði mér óvonir um (Þetta er skííítin setning). Og ég frétti í dag að við erum víst síðasti árgangurinn sem tekur þessi blessuðu próf sem hafa ollið mörgum óþægindum í gegnum tíðina. En ef ég á að vera alveg hreinskilin þá öfunda ég ekki þá sem taka þau ekki, hefði ekki viljað sleppa þessu. Þetta er eitthvað sem allir sem eru eldri en maður hafa gert og það er ákveðin stemming í þessu. Þó að þetta hafi verið virkilega erfitt og leiðinlegt stundum þá finnst mér heiður að hafa verið síðust til að gera þetta.

En eftir prófið fórum við í óvissuferð. Það var bara gaman, svosem engin óvissa :D Hérna á vestfjörðum eru ekki margir staðir um að velja til að fara til svona í nokkra tíma ferð. Og við fórum á Suðureyri. Fórum í frystihúsið þar sem heitir víst Íslandssaga. Og fengum leiðsögn í gegn um allt þar sem var gaman bara, kúl að sjá þetta allt. Og fórum og skoðuðum svona... kalla vera að beita sem var ekki jafn kúl en s amt ágætt, hræðileg lykt þar og svona sveittir kallar heh :P Svo fór mannskapurinn í sund, þeir sem komu með sundföt (A) Og hinir fengu að flippa í íþróttasalnum og gymminu (Y). Og blablalba fórum í heimsókn til Helgu í Botni heeeehh en það var geðveikt gaman, fullt af litlum kálfum og óléttum beljum haha. Og óléttum kindakonum taugaveiklaðari en nokkru sinni. Svo var robotinn sem mjólkar kýrnar ekkert smá sniðugur en ég nenni ekki að lýsa því öllu. Allt sjálfkrafa og læti.
Ætla að láta þetta duga í bili. Árgangur 91 til hamingju!

-andreahineinasannagylfadóttirgrrr

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 22:38:59 / andrea

10.Bekkingar takið eftir!

*
10.Bekkingar um landið allt!

*
Hvað fannst ykkur um

*
samræmda dönskuprófið?
Og öll hin?


» 25 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
S�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1880 dögum
Borghiiiild 16 :D
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1671 dögum
Gorgeus!

"model.jpg

Borghild 16
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1671 dögum